Fyrsta fréttasbréf Skyggnis hefur litið dagsins ljós. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um hvernig hægt er að auka öryggi í aðgangsstýringum, hvernig fyrirtæki geta lækkað prentkostnað og nýtt skipulag Skyggnis.
Þar er einnig að finna frétt um samning Skyggnis og Icelandair Group, sem felur í sér að Skyggnir mun annast rekstur á upplýsingatækniumhverfi Icelandair Group til næstu þriggja ára. Samningurinn gildir fyrir Icelandair Group og öll dótturfélög þess, svo sem Icelandair, Flugfélag Íslands, Icelandair Cargo, IGS, Icelandair Hotels og Fjárvakur.