Skyggnir býður nú viðskiptavinum sínum lausn frá Microsoft, Forefront Identity Manager, sem tryggir aukna yfirsýn og öryggi fyrir aðgangsstýringar í tölvukerfum viðskiptavina. Lausnin gerir stofnun notenda og umsýslu við aðgangsstýringar mun einfaldari og öruggari en gengur og gerist.
Notendur eru stofnaðir í einu kerfi, þar eru þeir settir í viðeigandi aðgangshóp, sem getur verið deild innan fyrirtækis, sem er með fyrirfram skilgreind aðgengi að drifum, möppum og kerfum. Þá fer af stað ferli þar sem réttindum notenda er dreift. Hægt er að útbúa aðgang fyrir starfsmenn að tölvupósti og ýmsum aðgangsstýrðum kerfum í gegnum Microsoft Forefront Identity Manager í stað þess að stofna notandann í hverju kerfi fyrir sig.
"Það er ekki hlaupið að því í mörgum fyrirtækjum að bjóða eitt lykilorð fyrir öll kerfi. Með Microsoft Forefront Identity Manager er hins vegar hægt að tryggja yfirsýn yfir aðgang notenda að öllum kerfum og veita skjótari aðgang að þeim en áður," segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson lausnaráðgjafi hjá Skyggni.
Einn af kostum við Forefront Identity Manager er sá að ef notandi gleymir aðgangsorði sínu getur hann sjálfur endurvakið aðgangsorðið sitt að nýju með aðstoð kerfisins í stað þess að reiða sig á aðstoð tæknimanna, sem geta einbeitt sér að öðrum verkefnum.
Með Microsoft Forefront Identity Manager er ennfremur einfalt að ógilda aðgang þegar starfsmaður hættir eða flytur sig um set innan fyrirtækisins. "Það getur reynst tímafrekt að breyta aðgangi notenda í hverju sinni. Þá er hætta á því að það gleymist að loka fyrir aðgang að einhverju kerfanna, sem getur orðið að öryggisvandamáli," segir Snæbjörn.
Eimskip er eitt þeirra fyrirtækja hér á landi sem hefur tekið lausnina í notkun og segir Snæbjörn að unnið sé að innleiðingu hjá fleiri fyrirtækjum.