Tæknimenn í Vettvangsþjónustu Skyggnis
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingum til að starfa í öflugum hópi vettvangsþjónustumanna.
Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum við daglegt eftirlit og umsjón með útstöðvum/tölvukerfum
fyrir mörg af leiðandi og framsæknustu fyrirtækjum landsins. Spennandi fyrir þá sem hafa gaman að tækni, fjölbreyttum mannlegum samskiptum og lifandi starfsumhverfi.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Góð alhliða þekking á upplýsingatækni
Góð þekking á Windows stýrikerfum er skilyrði
Mikill áhugi á tækni
Lipurð í samskiptum
Menntun á tæknisviði er æskileg
Microsoft gráður eru æskilegar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorvaldur J. Henningsson, deildastjóri Útstöðvaþjónustu Skyggnis, tjh@skyggnir.is
Tæknimenn í Þjónustumiðstöð Skyggnis
Starfið felst í úrvinnslu verkbeiðna, lausn þeirra og skráningu. Spennandi starf fyrir þá sem hafa gaman af tækni, fjölbreyttum mannlegum samskiptum og lifandi starfsumhverfi.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Góð alhliða þekking á upplýsingatækni
Þekking á Windows stýrikerfum er skilyrði
Mikill áhugi á tækni
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Menntun á tæknisviði er æskileg
Starfsreynsla í þjónustu er æskileg en efnilegir einstaklingar með góðan tölvubakgrunn koma einnig til greina.
Microsoft gráður eru kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Matthíasdóttir, deildastjóri Þjónustumiðstöðvar Skyggnis, margretm@skyggnir.is
Sérfræðingar í Microsoft lausnum
Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum tengdum uppsetningu og ráðgjöf á Microsoft lausnum eins og SharePoint 2007/2010 og Microsoft Active Directory.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Þekking og reynsla á Microsoft SharePoint 2007 og 2010
Þekking og reynsla á Microsoft Active Directory
Árangursdrifin(n) og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Geta til að kynna hugmyndir og lausnir í rituðu og töluðu máli
Frumkvæði til að taka þátt í mótun og framgangi starfsins
Útsjónarsemi og geta til að finna lausnir á flóknum vandamálum
Microsoft gráður æskilegar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Zoëga, deildastjóri Net- og samskiptalausna, guz@skyggnir.is
Sérfræðingar í IBM xSeries vélbúnaði og IBM Storage
Við leitum að sérfræðingum sem hafa reynslu af þjónustu á IBM netþjónum og/eða IBM Storage. Starfið felst í uppsetningu og þjónustu á vélbúnaðinum og tengdum lausnum.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Góð tæknikunnátta ásamt reynsla af þjónustu.
Útsjónarsemi og hæfni til að finna lausnir á flóknum vandamálum
Drifkraftur og vandvirkni
Tæknilegar vottanir eru kostur
Frumkvæði til að taka þátt í mótun og framgangi starfsins
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásmundur Bjarnason, deildastjóri Kerfisþjónustu Skyggnis, asmundur@skyggnir.is
Sérfræðingar í VMWare
Við leitum að öflugum einstaklingum með góða þekkingu og reynslu af VMware eða Microsoft Hyper-V sýndarvæðingu. Starfið felst í ráðgjöf og innleiðingu á sýndarvæðingarlausnum með áherslu á VMware og Hyper-V.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Þekking og reynsla á VMware eða Hyper-V
Árangursdrifin og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Geta til að kynna hugmyndir og lausnir í rituðu og töluðu máli
Frumkvæði til að taka þátt í mótun og framgangi starfsins
Útsjónarsemi og geta til að finna lausnir á flóknum vandamálum
Microsoft gráður eru æskilegar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásmundur Bjarnason, deildastjóri Kerfisþjónustu Skyggnis, asmundur@skyggnir.is