Þú ert hér:

Skyggnir tilnefnt til markaðsverðlauna

25.02.10

Ímark, félag íslensks markaðsfólks, hefur tilnefnt Skyggnis merkið sem eitt af fimm bestu firma- og vörumerkjum 2009. Skyggnir mun því keppa við fimm önnur fyrirtæki um að hreppa markaðsverðlaunin, Lúðurinn 2009, í þessum flokki.

Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem félag innan samstæðunnar er tilnefnt til þessara verðlauna. Því verður spennandi að fylgjast með úrslitunum sem kynnt verða á Markaðsdeginum þann 5. mars 2010 sem haldin verður á Hilton Nordica hóteli.

Nánari upplýsingar er að finna hér.