18.01.10
Skyggnir verður á Microsoft ráðstefnunni: Best of TechEd & Convergence 2010.
Um er að ræða mjög metnaðarfulla dagskrá og það má með sanni segjast að sjaldan hafa komið jafn margir sérfræðingar frá Microsoft til Íslands.
Af hverju að mæta á TechEd? * Ertu að leita að sóknarfærum á nýju ári?
* Tækifærum til að spara?
* Viltu vita hvernig tæknin getur komið þér í gegnum kreppuna?
Þá kemur þú á stærsta viðburð ársins í upplýsingatækni á Íslandi.
Á Best of TechEd & Convergence 2010 velur þú úr meira en 100 fyrirlestrum um allt það nýjasta í tækniþróun Microsoft og samstarfsaðila. Hvort sem þú ert stjórnandi, tæknimaður eða forritari setur þú saman þétta dagskrá sem er sniðin að þínum þörfum og veitir þér nýjar hugmyndir og þekkingu sem nýtist þér og þínu fyrirtæki á komandi mánuðum.
Þátttaka er ókeypis.
Skoðaðu
dagskrána, veldu fyrirlestra sem skila þér árangri og bókaðu sem fyrst, því það verður fljótt að fyllast á Best of TechEd & Convergence 2010.
Við hvetjum þig til að heimsækja okkur á bás Skyggnis og kynna þér Microsoft þjónustu okkar.
Skyggnir er gull samstarfsaðili Microsoft .
Dagsetning viðburðar: 26.01.10 - 27.01.10
Tímasetning: 08:45-17:15
Staðsetning: Hilton Nordica Reykjavík Hótel
Skráning: Skráning fer fram á vefsíðu Microsoft
Heimasíða: http://4f2bf1e12e4046ac8bb0d13eb3e65f6b.cloudapp.net/#