Seinagangur um nauðsynlegar breytingar á reglugerðum um VSK og óskýr svör ráðamanna vegna uppbyggingu gagnavera hefur dregið mjög úr trúverðugleika Íslands og hugsanlega fælt erlenda viðskiptavini frá landinu, að mati Samtaka íslenskra fyrirtækja í gagnaversiðnaði.
Ríkiskaup og Skyggnir munu á næstunni gera með sér rammasamning um UT hýsingu og rekstrarþjónustu. Skyggnir varð fyrir valinu í flokki A en í þeim flokki eru fyrirtæki sem geta veitt heildarþjónustu í rekstri upplýsingatæknikerfa.
Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) hefur samið við Skyggni um rekstur á upplýsingatækniumhverfi félagsins. Skyggnir mun annast rekstur lykilkerfa, vöktun á búnaði og neti SL og afritun á tölvugögnum úr tölvukerfum þess. Þá mun SL fá aðgang að ráðgjöf og þjónustu tæknimanna. Um er að ræða viðbót við fyrri samning milli Skyggnis og SL.
Fyrsta fréttasbréf Skyggnis hefur litið dagsins ljós. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um hvernig hægt er að auka öryggi í aðgangsstýringum, hvernig fyrirtæki geta lækkað prentkostnað og nýtt skipulag Skyggnis.
Skyggnir heldur tvö VMware vSphere námskeið í ágúst og september í samstarfi við Arrow ECS. Tilvalin námskeið fyrir annars vegar lengra komna og hins vegar byrjendur.