Þú ert hér:

Um Skyggni

Eitt öflugasta upplýsingatæknifélag á Íslandi

Skyggnir er eitt öflugasta upplýsingatæknifélag á Íslandi með um 170 sérfræðinga. Félagið veitir alhliða þjónustu í hönnun, uppsetningu og rekstri upplýsingatækni- og samskiptalausna.

Markmið

Markmið Skyggnis er að skapa viðskiptavinum framúrskarandi rekstrar- og þjónustulegan ávinning af upplýsingatæknilausnum. Við leggjum okkur því fram um að greina og skilja þarfir viðskiptavinarins og mikilvægi þess að uppfylla þær.  Það hefur bein áhrif á afkomu viðskiptavinarins sem og okkar.

Áreiðanleiki og hagræði

Skyggnir sérhæfir sig í lausnum sem auka áreiðanleika, lækka kostnað og bæta eiginleika upplýsingatæknikerfa. Félagið sérhæfir sig jafnframt í net- og samskiptalausnum sem auka framleiðni starfsmanna og efla þjónustustig fyrirtækja og stofnana.

Dótturfélag Nýherja

Skyggnir er eitt af dótturfélögum Nýherja á Íslandi en auk þess er Nýherji með starfsemi í Danmörku og Svíþjóð. Hjá samstæðunni starfa um 600 manns þar af 180 erlendis. Nýherji er skráð hjá OMX og velti 14.650 mkr á reikningsárinu 2008.

Nýtt viðskiptamódel

Nýherji innleiddi nýtt viðskiptamódel fyrir starfsemi samstæðunnar á Íslandi í október 2008. Við breytingarnar var öll rekstrar- og hýsingarþjónusta TM Software og tækniþjónusta Nýherja sett í eitt fyrirtæki undir nafni Skyggnis ehf.

Stjórnendur

Framkvæmdastjóri Skyggnis er Friðrik Þór Snorrason en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar Nýherja. Friðrik er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics og BA gráðu í sama fagi frá University of Wisconsin í Madison.

Þorvaldur Jacobsen er framkvæmdastjóri Tæknisviðs Skyggnis. Hann hafði gegnt starfi framkvæmdastjóra Kjarnalausna Nýherja frá árinu 2005 og starfað hjá félaginu frá 2002. Hann var áður sölustjóri hjá Teymi hf. og Opnum Kerfum hf.  Þorvaldur er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, með BS gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla og meistaragráðu í verkfræði frá University of Texas í Austin.

Magnús Böðvar Eyþórsson er framkvæmdastjóri Sölu- og lausnasviðs Skyggnis. Hann hefur víðtæka reynslu í upplýsingatækniiðnaði á sviði sölu- og markaðsmála, uppbyggingu þjónustulausna og rekstri tæknideilda. Hann starfaði áður hjá Símanum í þrjú ár, fyrst sem forstöðumaður Þjónustu og síðar sem forstöðumaður Sölu fyrirtækjasviðs. Þar áður starfaði hann í átta ár hjá Skýrr sem aðstoðarframkvæmdastjóri Sölu- og markaðsdeildar og síðar sem framkvæmdastjóri Þjónustulausna. Magnús er með BSc í tæknifræði frá Helsingör Teknikum í Danmörku.

Skipurit Skyggnis

Helstu upplýsingar

Skiptiborð og móttaka Skyggnis er opin frá 8:00 til 17:00. 
Sími 516 1000.

Þjónustumiðstöð Skyggnis er opin viðskiptavinum okkar allan sólarhringinn allan ársins hring.
Sími 516-1600.

Starfsstöðvar

Skyggnir rekur fjórar starfsstöðvar á Íslandi, í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Neskaupstað. 
Höfuðstöðvar félagsins eru í Borgartúni 37, Reykjavík.


Borgartún 37
105 Reykjavík
Sími: 516 1000
Fax: 516 1001 

Skipagata 18
600 Akureyri
Sími: 516 1370

Nesgötu 4
Neskaupstað
Sími: 516 1380

Miðási 1
900 Egilsstöðum
Sími: 516 1380