Þú ert hér:

Verkstæði

Afgreiðslutími í Reykjavík:
Virka daga frá 09:00 - 17:00.
Köllunarklettsvegur 2.

Sími: 516 1677
Tölvupóstfang: ver@skyggnir.is

Afgreiðslutími á Akureyri:
Virka daga frá 09:00 - 17:00.
Kaupangi við Mýrarveg á Akureyri.

Sími: 516 1360
Tölvupóstfang: verkstaedi-ak@skyggnir.is

Eitt stærsta tölvuverkstæði landsins

Fagleg og skjót þjónusta sérfræðinga.  Skyggnir státar af einu stærsta tölvuverkstæði landsins og er lögð mikil áhersla á að innan þess starfi ávallt fremstu sérfræðingar landsins á þessu sviði.

Á þriðja tug sérfræðinga

Á þriðja tug sérfræðinga sjá um viðgerðir á ThinkPad fartölvum, ThinkCentre borðtölvum, auk viðgerða á prenturum, ljósritunarvélum, plotterum og faxtækjum.

Vottaður IBM þjónustuaðili

Sérfræðingar verkstæðisins hafa hlotið fjölda vottana frá helstu samstarfsaðilum, s.s. IBM, Lenovo, Microsoft, Canon og Lexmark.

Verkstæði Skyggnis er vottað sem ,,Authorized IBM Service Partner" sem þýðir meðal annars að verkstæðið fullnægir kröfum IBM til viðhalds og viðgerða á hæsta stigi, auk þess að hafa greiðan aðgang að sérfræðingum IBM reynist þess þörf.

Verkstæðið er einnig ,,IBM Premium Warranty Service Provider" sem er sérstök viðurkenning frá IBM sem mælir áreiðanleika verkstæðisins og ánægju viðskiptavina. Aðeins þrír samstarfsaðilar IBM á Norðurlöndunum hafa hlotið þessa viðurkenningu.

Biðtími viðgerða er að jafnaði þrír til fimm dagar

Þjónusta á verkstæði gengur hratt og vel fyrir sig og er biðtími þjónustubeiðnum að jafnaði þrír til fimm dagar.

Strangar kröfur um varahluti

Skyggnir kappkostar að eiga ætíð til varahluti á lager í samræmi við kröfur birgja. Stöðugt og traust samband við samstarfsaðila og skipulagðar vörusendingar stuðla að öryggi í rekstri fyrirtækja.

Viðgerðir á Canon, Panasonic og Sony vörum

Beco (sími 533-3411) annast viðgerðir á Canon myndavélum og upptökuvélum fyrir Nýherja. Hafið samband við verslun Nýherja, Borgartúni 37, eða sölusvið Nýherja, fyrir nánari upplýsingar. Síminn er 569 7700.

Vinsamlegast hafið samband við Sense, dótturfélag Nýherja, vegna viðgerða á Sony og Panasonic vörum. Sense er staðsett í Hlíðarsmára 3 og er síminn 585 3800.