Í hýsingu Skyggnis býðst þér að haga þjónustu og rekstri á búnaði þínum eins og þér hentar. Viðskiptavinum býðst að sjá um allan rekstur sjálfir og geta þeir sinnt þeim rekstri með fjartengingu við sinn búnað. Flestir sjá sér þó hag í því að fela Skyggni rekstur og eftirlit með því að velja saman hýsingu og rekstrarþjónustu. Rekstrarþjónustan er sniðin að þínum þörfum og getur meðal annars falist í uppsetningu búnaðar, öryggis- eða stýrikerfisuppfærslum, afritatöku, aðstoð við notendur, eftirliti eða hvers kyns daglegum rekstri.