Kerfisveita Skyggnis gerir þér kleift að innleiða upplýsingakerfi með skömmum fyrirvara og litlum tilkostnaði. Um er að ræða þjónustu sem felur í sér hýsingu, umsýslu og rekstur hugbúnaðar fyrir viðskiptavini frá miðlægu tölvuumhverfi gegn föstu mánaðgjaldi á notanda. Þú þarft því ekki að binda fé í dýrum vélbúnaði og hugbúnaðarleyfum.
Í Kerfisveitu ábyrgist Skyggnir uppitíma, svartíma og öryggi.
Kostnaður við rekstur upplýsingakerfa er oft töluvert meiri en virðist við fyrstu sýn. Rekstrarkostnaður, kostnaður við að viðhalda þekkingu, kostnaður og óþægindi vegna rekstrartruflana eða niðritíma eru allt liðir sem erfitt getur reynst að greina. Með því að nota kerfisveitu Skyggnis lækkar þú kostnað og gerir hann sýnilegri.
Auðvelt er að fjölga eða fækka notendum í kerfisveitu þar sem um mánaðargjald á notanda er að ræða. Ekki þarf að huga sérstaklega að hugbúnaðarleyfum, auknum vélbúnaði eða sitja uppi með búnað eftir t.a.m. fækkun notenda og hlýst af því umtalsvert hagræði.