Skyggnir leggur metnað í að bjóða upp á bestu mögulegu þjónustu í vefhýsingum. Notendur sem krefjast hraðvirkrar og öruggrar vefþjónustu velja rétt með vefhýsingu Skyggnis.
Með því að vera með vefinn í vefhýsingu hjá TM Software - Skyggni tryggir þú að hann sé varðveittur við kjöraðstæður og alltaf sé hægt að heimsækja hann. Kerfisrými Skyggnis eru hönnuð frá grunni samkvæmt ströngustu stöðlum um gerð og uppbyggingu slíkra rýma.
Gagnaöryggi, hitastig, rakastig, eftirlit, aðgengi, vatnsvarnir og tryggt rafmagn eru allt þættir sem vandlega er hugað að til að tryggja hámarksuppitíma á öllum hýstum vefum hjá Skyggni. Skyggnir er með tvöfalda ljósleiðaratengingu beint við bakbein Internetsins en með því næst hámarkshraði og uppitími. Strangar öryggiskröfur samkvæmt vottuðu öryggiskerfi gilda um alla umgengni í kerfisrýminu og er því framfylgt með fullkomnu stjórnkerfi, viðvörunarkerfi og myndavélaeftirliti.
Í vefhýsingu Skyggnis færðu stuðning við alla helstu staðla sem eru í notkun á Internetinu í dag, og getum við boðið þér þjónustu sem er sniðin að þér og þínum rekstri, hvort sem um er að ræða vefhýsingu á Windows- og/eða Linux þjónum.
Í vefhýsingu Skyggnis býðst þér að haga þjónustu og rekstri á vefum þínum eftir þínum þörfum. Tvöföld tenging deilir álagi á milli vefþjóna og tryggir þar með hámarksuppitíma, hraða og öryggi.
Í vefhýsingu Skyggnis býðst þér að hýsa vefi þína, kerfi eða gagnagrunna án þess að þurfa þína eigin netþjóna en Skyggnir býður einnig upp á þjónustur eins og sýndar-, og blaðþjóna.
Skyggnir er með tvöfalda ljósleiðaratengingu beint við bakbein Internetsins en með því næst hámarkshraði og uppitími.
Strangar öryggiskröfur samkvæmt viðurkenndri öryggisvottun gilda um alla umgengni í kerfisrýminu og er þeim framfylgt með fullkomnu stjórnkerfi, viðvörunarkerfi og myndavélaeftirliti sem vaktað er af mannaðri Þjónustumiðstöð allan sólarhringinn, allt árið um kring.