Megin áhersla í þróun allrar þjónustu Skyggnis hefur ætíð verið á hagræði í rekstri upplýsingakerfa. Markmiðið hefur ávallt verið að finna bestu mögulegu leiðir við rekstur og þjónustu í upplýsingatækni, sem og að nota upplýsingakerfi til að hagræða í rekstri fyrirtækja til að lækka megi rekstrarkostnað.
Reynsla okkar hefur sýnt að með aðferðafræði Skyggnis getur náðst allt að 20% sparnaður í rekstri upplýsingakerfa. Sú aðferðafræði hefur verið þróuð af starfsmönnum Skyggnis með árunum og er sífellt í endurskoðun.
Skyggnir hefur í gegnum tíðina hagrætt í rekstri upplýsingakerfa hjá sínum viðskiptavinum í takt við árferði í viðskiptalífinu. Það hefur gefið ómetanlega reynslu og þekkingu við að minnka kostnað í slíkum rekstri og miðast þjónustuvörur Skyggnis ætíð við að minnka kostnað.
Til að hagræða í rekstri upplýsingakerfa hefur Skyggnir boðið uppá greiningu og ráðgjöf með það að markmiði að finna hagkvæmari leiðir til að reka viðkomandi umhverfi. Í því getur falist breyting á búnaði, kerfum, notendaaðstoð, nethögun o.s.frv. Í sumum tilfellum þarf engra sérstakra breytinga við á rekstrarumhverfinu sjálfu heldur nægir að færa notendaþjónustu yfir í Þjónustumiðstöð til að minnka kostnað við rekstur útstöðva og þjónustu við notendur.
Til að greina ofangreind tækifæri til hagræðingar býður Skyggnir viðskiptavinum uppá úttektir af ýmsu tagi. Í þeim í felst nákvæm skýrslugerð fyrir viðkomandi rekstrarumhverfi sem og tillögur til úrbóta. Sem dæmi um slíkar úttektir eru úttektir á nethögun og þar með netbúnaði en oft leynast hættur í vanhugsuðum netkerfum og rangt stilltum búnaði. Eins má nefna úttektir á netþjónaumhverfi og kerfum, ásamt hugbúnaðarleyfum en þar getur oft og tíðum leynst óþarfa kostnaður.