Þjónustumiðstöð Skyggnis samanstendur af Þjónustuborði og Vettvangsþjónustu. Sérfræðingar Þjónustumiðstöðvar veita viðskiptavinum upplýsingatækniþjónustu í takt við væntingar og samningsákvæði. Þjónustumiðstöð Skyggnis leitast við að beita ITIL ferlum til að tryggja enn frekar góða þjónustu.
Þjónustuborð Skyggnis er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins. Markmið Þjónustuborðs er að greiða fyrir endurheimtun/endurreisn á eðlilegu rekstrarstigi upplýsingakerfa með lágmarks truflunum fyrir viðskiptavininn í takt við umsamið þjónustustig og forgangsröðun.
Á þjónustuborði er veitt aðstoð í gegnum síma, þar sem mál eru greind og viðeigandi lausn fundin. Einnig geta viðskiptavinir sent Þjónustuborði ósk um aðstoð með tölvupósti eða í gegnum vefviðmót. Sérfræðingar Þjónustuborðs leysa málin símleiðis með því að yfirtaka tölvu með samþykki viðkomandi en ef þess gerist þörf þá sendir Skyggnir sérfæðinga á staðinn.
Vettvangsþjónusta felur í sér viðveru tæknimanns á vinnustað viðskiptavinar. Vettvangsþjónustumaður aðstoðar notendur og sinnir viðhaldi. Það er undir viðskiptavini komið hvort hann kýs að hafa vettvangsþjónustumann á staðnum alla daga vikunnar eða með reglulegum heimsóknum.
Skyggnir býður upp á vöktunarþjónustu allan sólarhringinn allan ársins hring þar sem sérfræðingar vakta tölvukerfi viðskiptavina úr höfuðstöðvum Skyggnis. Við vöktun er notaður afar fullkomin búnaður í eigu Skyggnis sem vaktar kerfi viðskiptavina í rauntíma. Þetta á bæði við um kerfi sem eru í hýsingu hjá Skyggni en einnig um kerfi sem eru í rekstri í húsnæði viðskiptavina. Það fer eftir óskum viðskiptavinar hvort vaktmenn Skyggnis komi upplýsingum um villuboð áfram til tæknimanna viðskiptavinar eða tæknimanna Skyggnis sem koma kerfum aftur í rétt horf.